Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur nú verið endurvakin  eftir 13 ára hlé og fer fram dagana 12.-21. september næstkomandi. Það er sjálfseignarstofnunin Heimili kvikmyndanna ses. sem stendur fyrir hinni endurvöktu hátíð. Kvikmyndahátíð í Reykjavík er sjálfseignarstofnun sem starfar með það að markmiði að efla og styrkja kvikmyndamenningu og -iðnað á Íslandi og er hátíðin ekki haldin í hagnaðarskyni.

Markmið með endurvakningu Kvikmyndahátíðar í Reykjavík er að skapa viðburð í samvinnu og samstöðu allra sem málið varða og annast framkvæmd hennar og stjórnun á sem faglegastan hátt. 

Hátíðin mun veita almenningi aðgang að rjómanum af þeim kvikmyndum sem hafa hlotið verðlaun og viðurkenningar á stærstu kvikmyndahátíðum heims þar sem áherslan er lögð á gæði frekar en magn kvikmynda. Áhorfendaverðlaun hátíðarinnar verða veitt við hátíðlega athöfn á lokahófi hennar, en einnig verður alþjóðlegur verðlaunaleikstjóri heiðraður.

Á meðal gesta, verða þekktir verðlaunaleikstjórar og aðrir alþjóðlegir kvikmyndagerðarmenn.

Áhersla verður lögð á að sýna það nýjasta úr kvikmyndagerð heimsins og einnig verður sérstök áhersla lögð á tengslamyndun íslenskra og erlendra kvikmyndagerðarmanna.

Hátíðin verður samstarfsverkefni allra hagsmunaaðila í kvikmyndageiranum á Íslandi er markmiðið með hinni endurvöktu hátíð að þjóna samfélaginu sem hún sprettur úr, efla og auðga kvikmyndamenningu á Íslandi árið um kring og vera íslenskum kvikmyndaiðnaði lyftistöng bæði erlendis og innanlands. Allt kapp verður lagt á að starfrækja Kvikmyndahátíð í Reykjavík á faglegan, gagnsæjan og lýðræðislegan hátt með stjórn skipaðri úr fagfélögum kvikmyndaiðnaðarins.

Starfsfólk hátíðarinnar mun tileinka sér fagleg og ábyrg vinnubrögð gagnvart samstarfsaðilum, gestum og öðrum starfsmönnum. Erlendum blaðamönnum úr helstu og þekkstustu fjölmiðlum heims verður boðið að sækja hátíðina heim en sérleg upplýsingamiðstöð hátíðarinnar verður stofnuð til að taka á móti gestum hennar.

Af þessu tilefni er vefsíða hátíðarinnar opnuð í dag, reykjavikfilmfest.is en hún verður bæði aðgengileg á íslensku og á ensku. 

Stjórn hátíðarinnar skipa Friðrik Þór Friðriksson, Guðrún Edda Þórhannesdóttir, Birna Hafstein, Dögg Mósesdóttir, Bergsteinn Björgúlfsson og Sjón. Framkvæmdastjórn skipa Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Heimili kvikmyndanna ses.; Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradísar og Guðmundur E. Finnsson, viðburðastjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík.