Styrkupphæð miðast við hvert barn og að foreldri hafi stundað 100% vinnu sl. 6 mánuði fyrir fæðingu/ættleiðingu barns/barna.
Styrkurinn lækkar í hlutfalli við starfshlutfall félagsmanns. Þurfi félagsmaður að draga úr vinnu eða hætta störfum vegna veikinda fyrir fæðingarorlof skal horfa til starfshlutfalls fyrir veikindin.
Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24ra mánaða aldri barns. Vekjum athygli á að styrkurinn fæst ekki greiddur fyrr en allt að þremur mánuðum eftir töku fæðingarorlofs.